Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Menning

Ritlistakvöld með Hildi Knútsdóttur

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-10-05-at-12.17.05
kaffid.is

Miðvikudagskvöldið, 7. október, klukkan 20 til 22 fer fram ritlistakvöld Ungskálda á LYST í Lystigarðinum. Leiðbeinandi kvöldsins verður Hildur Knútsdóttir en hún hefur skrifað fjölda bóka fyrir ungmenni og fullorðna auk leikrita og smásagna.

Hildur er þekktust fyrir hrollvekjur og furðusögur og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenningar. Meðal bóka eftir hana eru Vetrarfrí og Vetrarhörkur, Myrkrið milli stjarnanna, Hrím, Kasia og Magdalena, Gestir og þríleikurinn Ljónið, Nornin og Skógurinn. Bækur hennar hafa verið þýddar á erlend tungumál og New York Times útnefndi bók hennar The Night Guest (Myrkrið milli stjarnanna á íslensku) sem einn af bestu thrillerum ársins 2024.

Kvöldið er ætlað ungu fólki á aldrinum 16 til 25 ára sem hefur áhuga á ritlist og kostar ekkert inn. Ritlistakvöld Ungskálda er frábært tækifæri til að læra eitthvað nýtt, hitta önnur skáld, kynnast verkum þeirra og jafnvel lesa upp sín eigin verk.

Boðið verður upp á veitingar fyrir skráða gesti en skráningarhlekkur fyrir kvöldið er hér: https://forms.gle/sc5sDw2z292GH9tG7

Þessa dagana stendur einnig yfir ritlistakeppni Ungskálda. Öll á aldrinum 16 til 25 ára á Norðurlandi eystra geta tekið þátt í keppninni og er hægt að senda inn verk til og með 1. nóvember. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd, en þeir þurfa þó að vera á íslensku og frumsamið hugverk unnir án aðkomu gervigreindar. Vegleg peningaverðlaun eru veitt fyrir efstu þrjú sæti ritlistakeppninnar. Allar nánari upplýsingar má finna á ungskald.is.

Að Ungskáldaverkefninu standa Amtsbókasafnið á Akureyri, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri, Ungmennahúsið í Rósenborg og Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

Tengdar greinar

Uppfært: 5. október 2026