Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Menning

Ritlistakvöld á LYST

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
lyst-845×550
kaffid.is

Rithöfundurinn Hildur Knútsdóttir verður með ritlistakvöld á LYST í Lystigarðinum miðvikudaginn 7. október á milli klukkan 20:00 og 22:00. Viðburðurinn er ókeypis og er sérstaklega ætlaður ungu fólki á aldrinum 16 til 25 ára sem hefur áhuga á ritlist. Á kvöldinu gefst þátttakendum kostur á að fræðast um ritlist, hitta önnur skáld og lesa upp eigin texta. Skráning fer fram á vef Akureyrarbæjar og veitingar verða í boði fyrir skráða gesti.

Hildur skrifar bækur fyrir bæði börn og fullorðna sem og leikrit og smásögur. Hún er einna helst þekkt fyrir furðusögur og uggvænlegar hrollvekjur. Meðal bóka eftir hana eru Vetrarfrí og Vetrarhörkur, Myrkrið milli stjarnanna, Hrím, Kasia og Magdalena, Gestir og þríleikurinn Ljónið, Nornin og Skógurinn. Verk Hildar hafa hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar, þeirra á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunin, Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar og Verðlaun bóksala.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. september 2026