Ritlistakeppni Ungskálda hefst í dag

Ertu ungt skáld og hefur gaman af því að skrifa? Ritlistakeppni Ungskálda hefst í dag en keppnin er opin ungu fólki á aldrinum 16–25 ára.
Engar hömlur eru á textunum varðandi efnistök eða lengd. Verkin þurfa þó að vera á íslensku og frumsamin af þátttakendum. Þau sem vilja taka þátt skila inn verki í gegnum rafrænt eyðublað.
Ritlistakvöld Ungskálda eru einnig haldin í haust og eru áhugasöm hvött til að mæta. Þar gefst ungu fólki tækifæri til að kynnast ritlist, hitta aðra sem hafa áhuga á skrifum og fá innblástur. Ekki er skilyrði að taka þátt í ritlistakvöldunum til að senda inn verk í keppnina og þátttaka í keppninni er heldur ekki skilyrði fyrir þátttöku í ritlistakvöldunum.
Síðasti skilafrestur ritverka er til miðnættis 1. nóvember. Veitt eru peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin.
Nánari upplýsingar á www.ungskald.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 1. október 2026





