MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Rík áhersla á styttingu og nútímavæðingu þjóðvegarins milli Akureyrar og Reykjavíkur

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Frame-01-08-2018-09-20-44
kaffid.is

Bæjarstjórn Akureyrar lagði fram bókun á bæjarstjórnarfundi síðastliðinn þriðjudag, 15. september, þar sem segir að stytting og nútímavæðing þjóðvegarins milli Akureyrar og Reykjavíkur sé eitt stærsta og mikilvægasta hagsmunamál bæjarfélagsins til framtíðar litið.

„Bæjarstjórn Akureyrar leggur ríka áherslu á að stytting og nútímavæðing þjóðvegarins milli Akureyrar og Reykjavíkur er eitt stærsta og mikilvægasta hagsmunamál bæjarfélagsins til framtíðar litið. Greiðar, öruggar og styttri samgöngur á landi eru grundvallarforsenda fyrir lífsgæðum íbúa, auknu umferðaröryggi og samkeppnishæfni atvinnulífs á svæðinu, auk þess að styðja við skilgreint hlutverk Akureyrar sem svæðisborgar og raunverulegs mótvægisafls við suðvesturhornið,“ segir í bókun Bæjarstjórnar.

„Bæjarstjórn áréttar mikilvægi þess að heildarhagsmunum svæðisins sé gætt í hvívetna við alla innviðauppbyggingu og stefnumótun á landsvísu. Til að fylgja þessum hagsmunum markvisst eftir mun bæjarstjórn einsetja sér að senda ávallt inn formlegar umsagnir og ábendingar þegar til umfjöllunar eru breytingar á lögum, stefnum, áætlunum eða öðru sem snertir eða getur haft áhrif á framgang þessara brýnu samgönguhagsmuna.“

Málshefjandi var Sindri S. Kristjánsson sem bar upp sameiginlega bókun bæjarstjórnar.

Tengdar greinar

Uppfært: 17. september 2026