Revival frá VMA í úrslit Ungra frumkvöðla 2025Mynd/VMA

Revival frá VMA í úrslit Ungra frumkvöðla 2025

Á vorönn er kenndur áfangi í frumkvöðlafræði í VMA og felst hluti námsins í því að stofna fyrirtæki um  viðskiptahugmyndir. Íris Ragnarsdóttir kennir áfangann og stofnuðu nemendur að þessu sinni fimm fyrirtæki. Þeir kynntu síðan fyrirtækin og viðskiptahugmyndirnar á árlegri Vörumessu Ungra frumkvöðla í Smáralind 4.-5. apríl sl. Í það heila kynntu um140 fyrirtæki hugmyndir sínar og voru 30 þeirra valin í úrslitakeppni ungra frumkvöðla 2025 – þar á meðal eitt af fyrirtækjunum sem nemendur í frumkvöðlaáfanganum í VMA settu á stofn – Revival.

Að baki Revival standa Álfheiður Birta Þorsteinsdóttir, Karen Irani Þorgeirsdóttir, Ester María Andreasdóttir Nyman og Vilborg Díana Jónsdóttir og stofnuðu þær fyrirtækið um framleiðslu og sölu samnefnds fæðubótarefnis. Um er að ræða tvær mismunandi blöndur í duftformi, önnur er morgunblanda og hennar því neytt að morgni dags en hin blandan er hugsuð að kvöldi, fyrir svefninn. Markhópurinn er fyrst og fremst fólk á aldrinum 16-35 ára.

Í morgunblöndunni er m.a. kreatín og gúarana og er þessi blanda öðruvísi en í öðrum hérlendum fæðubótarefnum. Sérstaðan í kvöldblöndunni er kítósan, sem er fjölsykra úr kítíni sem er einangrað úr rækjuskel. Kítósanið dregur úr framleiðslu hormónsins kortisól og virkar slakandi á líkamamsstarfsemina að kvöldi dags.

Við samsetningu fæðubótarefnanna fékkst ráðgjöf frá sérfræðingum í fyrirtækinu Arctic Therapeutics ehf en samstarfsaðili um framleiðslu fæðubótarefnisins er Pharmarctica ehf. á Grenivík.

„Þær Álfheiður, Karen, Ester og Vilborg segja að þessari hugmynd hafi verið mjög vel tekið á Vörumessunni í Smáralind en þær hafi engan veginn búist við því að verða valdar til þátttöku í úrslitum Ungra frumkvöðla. Þær hafi fengið að vita af því fyrradag og fyrirvarinn til undirbúnings í úrslitunum hafi verið skammur því í morgunsárið í dag, þriðjudag, hitti þær dómara í keppninni í höfuðstöðvum Arion banka í Reykjavík og á morgun verði þær á sama stað með fjögurra mínútna kynningu á hugmynd sinni ásamt öllum hinum 29 fyrirtækjunum,“ segir á vef VMA þar sem lesa má nánar um frumkvöðlana í skólanum.

Sambíó
Sambíó