Rektorar íslenskra háskóla fagna þeirri ákvörðun Alþingis að hækka fjárframlög til háskólanna við afgreiðslu frumvarps til fjárlaga 2017 og koma þannig til móts við áskorun rektora til þingmanna um að bæta úr undirfjármögnun íslensks háskólakerfis.
Rektorar taka undir ákvæði í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sem kveða á um eflingu allra skólastiga og að styðja skuli háskólana í að halda uppi gæðum og standast alþjóðlega samkeppni um leið og samvinna og samhæfing íslenskra háskóla- og vísindastofnana verður aukin. Þá taka rektorar eindregið undir að endurskoða þurfi reiknilíkön háskólakerfisins, því að forsenda þess að háskólar á Íslandi geti haldið uppi gæðum og staðist alþjóðlega samkeppni að þeir búi við sambærilega fjármögnun og háskólar í nágrannalöndum okkar. Stjórnvöld hafa áður markað sér þá stefnu að meðaltali framlaga til háskóla í OECD-ríkjum skuli náð og síðar meðaltali Norðurlandanna en Ísland er enn langt undir þeim markmiðum. Því er mikilvægt að viðbótarframlag til háskólanna í fjárlögum 2017 verði ekki tímabundin aðgerð heldur verði einungis fyrsta skrefið í markvissri áætlun um bætta fjármögnun háskólanna.
UMMÆLI