Akureyri
Mynd: Kaffið.is/Jónatan

Rekstur Akureyrarbæjar gekk betur en áætlanir gerðu ráð fyrir

Ársreikningar Akureyrarbæjar fyrir árið 2025 voru lagðir fram í bæjarráði í morgun. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri segist vera sátt við niðurstöðuna enda hafi reksturinn gengið betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Niðurstaðan var jákvæð um rúman milljarð en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir 846 milljóna króna afgangi. Greint er frá á vef Akureyrarbæjar í dag.

„Við getum ekki annað en verið sátt við þessa niðurstöðu. Það eru helst lífeyrisskuldbindingar í kjölfar nýrra kjarasamninga opinberra starfsmanna sem skekkja myndina dálítið en þrátt fyrir það erum við réttum megin við núllið og gott betur en það. Bæjarbúum heldur áfram að fjölga hægt og bítandi, ný hverfi byggjast upp og það er hugur í fólki. Ég er því bjartsýn á framhaldið og vona að við getum gert enn betur á komandi árum,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, á heimasíðu bæjarins í dag.

Allar nánari upplýsingar um ársreikninga Akureyrarbæjar 2025 er að finna hér.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!