MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Reitir reisa hjúkrunarheimili í Þursaholti

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
E818F18843DF310A3C8474EBD70BCF6E72B8DF50B5FA95E08AEB6784582E37E7_713x0
Ljósmynd: af Vísi – Reitir· kaffid.is

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir tilkynnti Reitum að tilboði félagsins í útboði um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri hafi verið valið. Var tilboðið metið hagstæðast samkvæmt valforsendum útboðslýsingar. Þetta kemur fram í tilkynningu Reita til Kauphallarinnar.

Samkvæmt tilkynningunni mun hjúkrunarheimilið rísa við Þursaholt 6, vera 9.100 fermetrar að stærð og mun hýsa 140 hjúkrunarrými. Leigutilboð Reita nemur 5.800 kr. á fermetra sem samsvarar 633 m. kr. á ári og er rekstrarávöxtun af framkvæmdinni áætluð um 6% af framkvæmdakostnaði sem gert er ráð fyrir að verði um 8.900 m. kr.

Að framkvæmdum loknum tekur við verðtryggður leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna til 25 ára um hjúkrunarheimilið þar sem Reitir annast rekstur húsnæðisins en Ríkiseignir fela öðrum rekstur hjúkrunarheimilisins.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026