Reiðhjólaslys við JökulsárgljúfurLjósmynd: Lögreglan á Norðurlandi eystra

Reiðhjólaslys við Jökulsárgljúfur

Stuttu eftir hádegi í dag féll reiðhjólamaður fram af kletti við Jökulsárgljúfur og slasaðist samferðamaður hans einnig við það að reyna veita honum aðstoð. Tilkynning kom frá lögreglu og sjúkraflutningamönnum á Húsavík um slysið og voru björgunarsveitir frá Húsavík, Kópaskeri, Mývatnssveit og loks Akureyri kallaðar út ásamt því að aðstoð frá LHG var óskað vegna þess hve erfitt var að nálgast hina slösuðu.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra segir einnig:

Í ljós kom að þarna höfðu tveir hjólreiðamenn verið á leið sinni upp með Jökulsánni að vestanverðu þegar annar þeirra féll af hjóli sínu og fram af klettabrún og lenti í gróðri og grjóti þar neðan við, talsvert fall. Viðkomandi aðili var með góðri meðvitund allan tímann en þurfti aðstoðar við.

Sjúkraflutninga- og björgunarsveitarmenn voru komnir til hjólreiðamannanna um 2 klst. síðar og hlúðu að þeim. Úr varð að þyrla LHG hífði þann slasaða upp til sín af þeim stað sem viðkomandi lá á í gróðrinum undir klettabeltinu.

Voru báðir hjólreiðamennirnir síðan fluttir með þyrlu LHG til Akureyrar til frekari aðhlynningar.

Þökkum við öllum viðbragðsaðilum fyrir skjót og fagleg viðbrögð í verkefni þessu sem var við mjög krefjandi aðstæður. Meðfylgjandi eru myndir teknar við vettvang.

Ljósmynd: Lögreglan á Norðurlandi eystra
Sambíó

UMMÆLI

Sambíó