MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

ReginaGunn opnar sýningu í Deiglunni

Eftir Ingólfur Stefánsson·
image-1024×577-1
kaffid.is

Laugardaginn 15. ágúst kl. 14.00 opnar ReginaGunn sýninguna NÚNA í Deiglunni á Akureyri. Á sýningunni verða fjölbreytt verk sem öll eiga rætur í augnablikinu – því að staldra við, taka eftir, upplifa og vera í því sem er.

Sýningin hefur þróast í ferlinu sjálfu þar sem Regína hefur leyft hugmyndum, upplifunum og ólíkum leiðum í sköpuninni að leiða sig áfram. Náttúran er henni mikil uppspretta innblásturs, ekki síst andstæðurnar sem þar mætast – kyrrð og kraftur, ró og orka.

„Þegar ég skapa finn ég frið og ró, en um leið kraft og orku. Tíminn gleymist, ég fylgi flæðinu og leyfi mér að vera í augnablikinu. Náttúran hefur lengi veitt mér innblástur og þar finn ég svo mikið af þessum sömu tilfinningum – kyrrðina og kraftinn. Þar gef ég mér rými til að staldra við, horfa, hlusta, taka eftir og upplifa mitt NÚNA hverju sinni. Við sjáum ekki öll það sama – við finnum og upplifum hvert á okkar hátt og eigum okkar margs konar núna. Verkin á sýningunni eru mín ólíku NÚNA – augnablik, upplifanir og tilfinningar sem hafa orðið að ólíkum verkum, rétt eins og hvert NÚNA er ólíkt. Við gerð sýningarinnar leyfði ég ferlinu að leiða mig áfram, prófa nýjar leiðir og vera opin fyrir því sem birtist. Með NÚNA langar mig að bjóða þér að sjá og upplifa mín NÚNA.“

Regína Gunnarsdóttir hefur fjölbreyttan bakgrunn í námi og starfi, bæði á akademískum vettvangi og í myndlist. Myndlist og sköpun hafa þó fylgt henni alla tíð og á síðustu árum hefur hún gefið eigin listsköpun sífellt meira rými.

Regína hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í ýmsum samsýningum. Hún er með vinnustofu í Þúfu 46, samfélagi listamanna á Akureyri, þar sem hún vinnur að eigin listsköpun.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026