MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Rebekka Kühnis opnar í Mjólkurbúðinni

Eftir Ingólfur Stefánsson·
list
kaffid.is

Fimmtudaginn 24. september opnar Rebekka Kühnis sýninguna „hverir og svarthol“ í Mjólkurbúðinni, Kaupvangsstræti 12, Akureyri. Verið öll hjartanlega velkomin!

Hverir og svarthol

Sýning sem fjallar um hverasvæði og svarthol sem op inn í óaðgengileg rými—bak við yfirborðið og niður í dýpina. Op í náttúrunni og alheiminum kalla á ímyndunarafl, undrun og spurningar um uppruna, tilvist og lokastöðu.

Rebekka Kühnis, sem er þekkt fyrir sérstaka túlkun sína á íslensku landslagi í málverkum og teikningum, beinist hér eingöngu að hverasvæðum og hinu víðara hugtaki um tómið.

Rebekka Kühnis fæddist árið 1976 í Windisch í Sviss og flutti til Akureyrar 2015. Hún stundaði nám við Hochschule der Künste í Bern og lauk þar meistaragráðu í list- og kennslufræði. Hún hefur síðan starfað sem listamaður og kennari og tekið þátt í fjölda einka- og hópsýninga í Sviss og á Íslandi.

Fimmtudaginn 24. 9. 17 – 19 opnun

25. 9. kl. 17-19

26. 9. kl. 14-17

27. 9. kl. 14-17

eða eftir samkomulagi

rebekkakuehnis.ch // instagram: kuehnis_art

Tengdar greinar

Uppfært: 21. september 2026