Rarik gaf VMA Scania-vél
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Rarik hefur gefið Verkmenntaskólanum á Akureyri díselvél af gerðinni Scania sem er komin inn á gólf í sal vélstjórnar VMA. Í tilkynningu á vef VMA segir að vélin muni nýtast mjög vel í kennslu vélstjórnarnema.
Vélin þjónaði um tíma sem aflgjafi Grímseyinga. Um er að ræða léttbyggða, hraðgenga vél með rafala sem Vilhjálmur Kristjánsson kennari í vélstjórn segir að nýtist afar vel í mælingar og önnur verkefni vélstjórnarnema. Vélin er nú þegar farin að nýtast í kennslu.
Önnur vél sem notuð var í hálfan annan áratug í Grímsey er einnig í vélaflota vélstjórnar. Hún er af gerðinni Volvo Penta árg. 1999.
Tengdar greinar
Uppfært: 14. október 2026





