Akureyringurinn Rannveig Oddsdóttir gerði sér lítið fyrir og bætti mótsmetið í kvennaflokki í Laugavegshlaupinu um helgina. Rannveig hljóp 55 kílómetra á rétt rúmum 5 klukkustundum og 29 sekúndum.
Rannveig hefur sigrað mótið í öll þau þrjú skipti sem hún hefur tekið þátt í því. Árin 2017 og 2018 og svo nú í ár.
Laugavegshlaupið er 55 km utanvegahlaup en Laugavegurinn tengir saman Landmannalaugar og Þórsmörk á sunnanverðu hálendi Íslands, tvær sannkallaðar náttúruperlur. Göngugarpar eru venjulega 4 daga á leið sinni um Laugaveginn.
UMMÆLI