Háskólinn á Akureyri og Orkustofnun hafa skrifað undir samning sín á milli um rannsóknir á örverulífríki gasaugna í Öxarfirði. Verkefnið er áframhald á rannsóknum undanfarinna tveggja ára þar sem nemendur og kennarar við HA hafa ásamt sérfræðingum frá Orkustofnun og ÍSOR rannsakað örverur sem þrífast í gasaugum á Austursandi í Öxarfirði, þar sem metangas streymir upp úr sandinum.
Tilgangur rannsóknanna er margþættur. Meðal rannsóknaspurninga má nefna:
- hvort uppruna gassins sé að leita í kolalögum undir sandinum,
- hvort nýta megi örverulífríki gasuppstreymisaugna til að spá fyrir um kol eða olíu í undirliggjandi jarðlögum,
- hvort örverurnar megi nýta til hreinsunar á olíuefnum úr menguðu umhverfi, svo sem eftir mengunarslys, við íslenskar aðstæður.
Samninginn undirrituðu Þórarinn Sveinn Arnarson, verkefnisstjóri eldsneytismála og orkuskipta, fyrir hönd Orkustofnunar og Oddur Vilhelmsson, prófessor í líftækni, fyrir hönd Háskólans á Akureyri.
UMMÆLI