Rannsókn á andláti karlmanns, sem fannst látinn í Laxá í Aðaldal í nótt, verður fram haldið á morgun, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Þetta kemur fram á mbl.is.
Sjá einnig: Maður fannst látinn í Laxá í Aðaldal
Rannsókn á tildrögum dráttarvélaslyss sem varð í Hrísey í gær verður einnig haldið áfram á morgun en rannsóknardeild lögreglunnar er ekki að störfum í dag enda helgidagur.
Engar upplýsingar voru gefnar upp um líðan mannsins en í upplýsingum frá lögreglunni í gær kom fram að meiðslin gætu verið meiriháttar.
Sjá einnig: Erill hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í dag