Rakel Hönnudóttir sem skipti nýverið yfir í lið Reading á Englandi mætir Manchester United í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar.
Reading sigraði Birmingham í sextán liða úrslitum keppninnar um helgina þar sem Rakel skoraði sigurmarkið í leiknum sem lauk 2-1 fyrir Reading.
Rakel hefur skorað þrjú mörk fyrir liðið í þremur leikjum fyrir félagið, þrátt fyrir að hafa byrjað á bekknum í þeim öllum.
UMMÆLI