Rakel Hönnudóttir lék sinn 100. landsleik
Eftir Jónatan Friðriksson·

Rakel Hönnudóttir leikmaður Reading á Englandi og landsliðskona kom inná í sínum 100. landsleik í stórsigri Íslands á Lettlandi í kvöld, leiknum lauk með 6-0 sigri Íslands.
Rakel er tíunda landsliðskonan frá upphafi sem nær 100 leikjum en fyrr á árinu komust Hallbera Guðný Gísladóttir og Fanndís Friðriksdóttir í þennan hóp en þær léku líka í leiknum í kvöld.
Rakel hefur skorað 9 mörk í þessum 100 landsleikjum.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










