Íslensku tónlistarverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í kvöld. Akureyringurinn Rakel Sigurðardóttir hlaut verðlaun sem flytjandi ársins í flokknum Önnur tónlist. Rakel var tilnefnd til þriggja verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár.
Sjá einnig: Rakel tilnefnd til þriggja verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Verðlaun voru veitt fyrir hljómplötur, lög og tónverk, flutning, söng, tónlistargrafík og myndbönd, upptökustjórn og textagerð. Önnur sem urðu flytjendur ársins í hinum ýmsu flokkum eru Laufey, Tómas Jónsson og Óður.
Hljómsveitin Todmobile hlaut heiðursverðlaun og Sara Mjöll Magnúsdóttir var valin bjartasta vonin. Laufey hlaut flest verðlaun.










