RAKEL gefur út nýtt lag í dag

Í dag kemur út lifandi útgáfa af laginu always, og myndband, eftir Akureyringinn Rakeli Sigurðardóttur, RAKEL. Lagið always (Live from Reykjavík) var tekið upp í hljóðveri Ólafs Arnalds í nóvember síðastliðnum. Auk Rakelar eru flytjendur Björg Brjánsdóttir, Tumi Torfason og Sara Flindt. Um upptökur/hljóðjöfnun sá Hafsteinn Þráinsson og myndbandsupptöku Maximilian König.

Sjá einnig: Rakel hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2026 sem flytjandi ársins

Hlustið hér

Horfið hér

RAKEL hefur átt góðu gengi að fagna undanfarið. Hún var valin Flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum síðastliðinn miðvikudag og er nýlokin við tónleikaferðalag um Evrópu þar sem hún hitaði upp fyrir Of Monsters and Men.

Hún er í Bandaríkjunum þessa dagana þar sem hún hefur spilað á nokkrum tónleikum á virtu bransahátíðinni sxsw auk tónleika Taste of Iceland í Seattle. Stuttu eftir að fyrsta plata hennar a place to be kom út (október 2025) var hún valin verðlaunahafi Plus-verðlauna Airwaves og titluð „næsta stjarna íslenskrar tónlistar“ af The Line of Best Fit og var valin til að taka upp live-myndband með þeim.

Framundan eru tónleikar í Iðnó (29.mars) auk Eldborgar (þar sem hún hitar upp fyrir John Grant) á Listahátíð (13.júní) auk þess sem hún kemur fram á bransahátíðunum Tallinn Music Week í apríl, Focus Wales og SPOT Festival í maí og Primavera Pro í júní.

a place to be var nýverið gefin út á vínyl og má nú nálgast hann í flestum plötubúðum í Reykjavík.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!