Ragnheiður Runólfsdóttir ráðin yfirþjálfari hjá Sundfélaginu Óðni

Ragnheiður Runólfsdóttir ráðin yfirþjálfari hjá Sundfélaginu Óðni

Ragnheiður Runólfsdóttir, Ragga, hefur verið ráðin nýr yfirþjálfari Sundfélagsins Óðins á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef félagsins í dag þar sem segir að Ragga búi yfir mikilli reynslu af þjálfun og að hún hafi starfað við sundþjálfun frá árinu 1992, lengst af sem yfirþjálfari.

Ragga er félaginu að góðu kunn þar sem hún sinnti þjálfun hjá Óðni á árunum 1996–1998 og svo aftur á árunum 2011–2019. Að undanförnu hefur hún starfað sem yfirþjálfari í Svíþjóð hjá Simklubben S02 í Gautaborg og hjá KBSS í Kungsbacka.

„Við í Sundfélaginu Óðni bjóðum Röggu hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum til að vinna með henni að því að efla starfið enn frekar,“ segir í tilkynningu Óðins.

Sambíó
Sambíó