Purrkur Pillnikk spila á Græna Hattinum í fyrsta sinn

Hljómsveitin Purrkur Pillnikk verður lifandi á Græna hattinum, Akureyri, næstkomandi laugardag þann 26. september. Einar Örn Benediktsson, söngvari sveitarinnar, segir að nokkur eftirvænting ríki hjá hljómsveitinni að komast loksins á Græna Hattinn.
„Við spiluðum aldrei á Akureyri og því er þetta jómfrúarferð okkar þangað, verandi þó 45 ára gömul hljómsveit. Við skulum ekki gleyma því að fyrra líf Purrks Pillnikk var 1981-1982,“ segir Einar við Kaffið.is.
„Seinna líf Purrksins hófst með upptökum á Orðum fyrir dauða, lagabálki sem við tókum aldrei upp í árdaga. Síðan þá höfum við samið ný lög og erum tilbúnir með plötuna „& aftur“ og kemur hún út í nóvember. Við erum búnir að gefa út tvö lög, „læknir&svín“ og „annars góður“. Því var fleygt fram eftir síðustu tónleika okkar, að ef viðkomandi hefði hlustað með lokuð augun þá hefði hann verið vissu að þessir gaurar ættu framtíðina fyrir sér,“ segir Einar.
Purrkur Pillnikk var afkastamikil hljómsveit á sínum tíma. 10 laga smáskífan Tilf kom út í apríl 1981, síðan fylgdi Ekki enn þá um haustið. Vorið 1982 kom út önnur stór plata, Googooplex. Í kjölfarið fylgdu No time to think, 4 laga smáskífa og tónleikaplatan Maskína. Hljómsveitin kom fram á yfir 60 tónleikum á þeim stutta tíma sem hún starfaði. Hljómsveitin kom fyrir í myndinni Rokk í Reykjavík eftir Friðrik Þór Friðriksson.
Í ár kom gaf Purrkur Pillnikk út sitt fyrsta lag í 44 ár, Læknir og svín.
„Það er víst að það er tilhlökkun hjá okkur, erum búnir að gúggla Græna og vitum núna heimilisfangið þannig við munum rata,“ segir Einar að lokum.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. september 2026





