MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Potterdagurinn mikli á Amtsbókasafninu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
harry_potter_fantasy_adventure_witch_series_wizard_magic_2560x1440
kaffid.is

Góðvinur barna, bókasafna (já og margra fullorðinna) sjálfur Harry Potter, á afmæli á mánudaginn 31. júlí. Líkt og hefð er orðin mun Amtsbókasafnið á Akureyri fagna deginum með pompi og prakt þegar Potterdagurinn Mikli fer fram.

Viðburðurinn fer fram milli kl. 15-17 og á þeim tíma geta gestir tekið þátt í skrímslabókasmiðju, ratleik, spurningakeppni og ýmisskonar föndri. Auk þess verður hægt að skoða sýninginuna Töfrum líkast, þar sem ýmsir munir úr galdraheiminum verða til sýnis.

Gestir eru eindregið hvattir til þess að mæta í búningum.

Potterdagurinn mikli var fyrst haldinn hátíðlegur á Amtsbókasafninu 2017 og hátt í 1000 manns hafa sótt viðburðinn ár hvert. Reiknað er með miklu stuði aftur á mánudag, þegar leikurinn verður endurtekinn.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026