Póstsaga Þingeyjarsýslu – Eiður Árnason

Eiður Árnason byrjaði að safna frímerkjum fyrir rúmlega 70 árum þegar hann var sjö ára gamall og gerir enn. Í myndbandinu hér að neðan ræðir Árni frá Gonzo.Creation við Eið og fær að læra um póstsögu Þingeyjarsýslu.

„Póstsaga landsins er mikil og merkur þáttur í sögu lands og þjóðar. Gaman er að rekja þann þátt með frímerkjum og póststimplum. Frá 1873 þegar fyrstu íslensku frímerkin voru gefuin út hafa verið starfrækt 73 bréfhirðingar og póstafgreiðslur í Þingeyjarsýslu og stimplanir eru miklu fleiri. Til dæmis hafa verið notaðir 10 stimplar á Húsavík. Safnið sem hér er til skoðunar nær frá 1818 til 1944, það var sýnt á Nordiu frímerkjasýningu í Garðabæ fyrir fáum árum en auk þess eru hér fáein bréf sem hafa bæst við safnið síðan, fljótt er hér farið yfir sögu,“ segir Eiður um myndbandið sem má sjá í spilaranum hér að neðan.

Sjá einnig: Hefur safnað frímerkjum í yfir 70 ár

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!