Milli Fjöru og Fjalla, einn af fremstu frumkvöðlum í vinnslu sauðfjárafurða á Eyjafjarðarsvæðinu hefur rekið POP up verslun í Gilinu á Akureyri undanfarna daga. Síðasti dagur POP up verslunarinnar er í dag, Þorláksmessu.
Í versluninni er að finna allskonar vörur af búi Milli Fjöru og Fjalla, allt frá Kofareyktu hangikjöti til heimasútaðra gæra. Einnig er að finna lopa, jólasteik og gjafabréf í afþreyingu á svæðinu.
Milli Fjöru & Fjalla er kjötvinnslu- og veitinga fyrirtæki fjölskyldunnar í Fagrabæ, við Eyjarfjörð. Þar er rekið sauðfjárbú og unnið það sem fellur til á búinu sjálf.
„Við leggjum mikið uppúr því að afgreiða okkar vörur í handhægum og neytenda vænum umbúðum, tilbúnar til eldunar og án allra aukaefna. Milli fjöru & fjalla leggur mikla áherslu á að auka virði ærkjöts og matreiða það á nýstárlegan máta,“ segir Halla Sif Guðmundsdóttir.
Vinnslan er starfrækt allan ársins hring og innblásturinn er fengin í eldhúsi þeirra mæðgna Margrétar Melstað og Höllu Sifjar Guðmundsdóttur.
„Okkur finnst skemmtilegast að afgreiða kúnnana okkar beint á matarmörkuðum, heimsendingu eða taka á móti þeim á veitingastaðnum okkar á Grenivík. Þessvegna slóum við til og ákváðum að opna POP up markað í Kaupvangsstræti 4, Gilinu á Akureyri. Þar erum við með hátíðarmatinn frá A-Ö, Kofareykt hangikjöt, fyllta hryggi, grafið ærfille, pate og margt fleira. Einnig er að finna handverksvörur úr ullinni okkar og sútaðar gærur af lömbum úr Fagrabæ,“ segir Halla Sif.
UMMÆLI