Pop-up fatapartý í Hofi
Eftir María Hjelm·

Fimmtudaginn 16. júlí frá klukkan 14:00–18:00 verður haldinn pop-up fatamarkaður í Hofi. Hugmyndin er að styðja við endurnýtingu; gamalt verður nýtt og með því að gefa fatnaði nýtt líf er verið að stuðla að sjálfbærri neyslu.
„Við höfum haldið svona markað reglulega í gegnum árin. Við verðum einnig með sérstaka fataslá þar sem allur ágóði fer til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis“, segja skipuleggjendur markaðarins.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










