Sýningin Polar Nord opnar fimmtudaginn 27. mars klukkan 16.00 á Bókasafni Háskólans á Akureyri. Öll velkomin og léttar veitingar verða í boði.
Polar Nord er sýning sem er samsett af myndum sem voru gerðar af myndlistamanninum Edmondo Steinari De Santis. Þær eru gerðar á árunum 2023-2026 með pásum.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Myndirnar eiga að túlka þróun á hugmyndum listamannsins af skepnum ásamt abstract hug mynd-um og blönduðum verkum með hugarfræði Steinars í huga. Skilaboðin eru allt frá því að vera einfaldleiki, grettur og pólitík en listamaðurinn hvetur áhorfendur til þess að meta verkin á sinn einstaka hátt.
Sýningin verður opin á opnunartíma Bókasafnsins:
- Mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 8:00-16:00
- Þriðjudögum og fimmtudögum kl. 8:00-18:00










