Pítsurnar komnar til að vera á Vamos

Nýverið lauk framkvæmdum við uppsetningu á eldhúsi á kaffihúsinu og barnum Vamos í miðbæ Akureyrar og framvegis verður hægt að panta pítsur á staðnum á milli klukkan 17 til 21 á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum.

Vamos byrjaði að selja pítsur fyrir tveimur árum þegar Goran Zelenika bauð upp á svokallaða „Pop-Up“ pítsusölu og viðbrögðin voru það góð að staðurinn fjárfesti í matarvagni þar sem seldar voru eldbakaðar pítsur. Nú hefur verið byggt eldhús á staðnum fyrir pítsagerð.

„Við ætluðum aldrei í eldhús eða vera með mikinn mat á Vamos. Gæðin í pizzunum og vinsældir í bland við metnað og ástríðu hjá Goran skiluðu því að við slóum til og byggðum eldhús fyrir aftan hjá okkur,“ skrifar Halldór Kristinn Harðarson, einn eiganda staðarins, á Facebook-síðu sinni.

Vamos verður áfram skemmtistaður en Halldór segir að skiptin á milli hæða verði skýrari. Boðið verður upp á steinbakaðar pizzur og smárétti, vandaða kokteila og gott kaffi í notalegu og afslöppuðu umhverfi á neðri hæðinni til klukkan 21. Frá klukkan 23 verður svo skemmtistaður á efir hæðinni þar sem áhersla verður á dansgólfið, stemningu og viðburði.

„Markmið okkar er að skapa fjölbreytta upplifun þar sem gestir geta notið bæði góðrar máltíðar, afþreyingar og boðið upp á skemmtilegt næturlíf, allt á einum stað,“ skrifar Halldór.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!