MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Pitenz spilar í strætisvagni númer 5

Eftir María Hjelm·
724958266_10239476781930955_5591267642241768252_n
Pitenz· kaffid.is

Úr þyngri dimmbylgjutónum þróaði Áki Frostason verkefnið Pitenz yfir í synth-pop og þaðan yfir í melankólíska og hedóníska ný-dans blöndu, sem fær bæði að njóta sín með og án söngs.

„Það er víða hefð fyrir að fólk spili í neðanjarðarlestum og öðrum almenningssamgöngum. Ég hef mikinn áhuga á tilraunakenndri notkun almenningsrýmis og mig hefur alltaf langað til að útfæra tónlistarflutning í almenningssamgöngum á minn hátt,“ segir Áki.

Stígið um borð í strætisvagn númer 5 á föstudaginn og njótið raftónlistar hringinn í kring um Akureyri. Pitenz mun spila í gegnum Glerárhverfi, Síðuhverfi, Lundahverfi, Brekkuna og Naustahverfi og er öllum frjálst að stíga inn eða út úr strætó þar sem þeim sýnist.

„Það er frítt í strætó hér í bæ sem er mjög smekklegt og svo voru SVA og Listasumar til í að vera í samstarfi við mig. Hvet alla til að mæta á leið 5 og upplifa Pitenz með Akureyri líðandi hjá í bakgrunni. Tíminn líður, vagninn flýgur og BSO er horfin,“ bætir Áki við.

Strætóinn leggur af stað frá miðbænum á slaginu 17:25, föstudaginn 17. júlí. Aðgangur er ókeypis.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026