Pétur Þór gefur út bókina „Ég vil ekki vera vinur þinn“

Í fyrrdag, 19. mars, kom út bókin Ég vil ekki vera vinur þinn eftir er Pétur Þór Jónasson.

„Þetta var hryllilegasti dagur lífs míns” segir Pétur um daginn sem hann var borinn þeim sökum að hafa áreitt samstarfskonu sína kynferðislega. Í tilkynningu segir hann að heimurinn hafi farið á hvolf og hann að hann hafi hvorki skilið upp né niður.

Pétur segir að í bókinni standi hann frammi fyrir því að henda gömlu karlmennskuímyndinni og mæta lesandanum berskjaldaður. Hann segir það ekki auðvelt fyrir karl á hans aldri en þeim mun áhugaverðara fyrir vikið. Höfundur segir frá reynslu sinni þegar honum var sagt upp störfum og veltir fyrir sér brotalömum í íslenskri stjórnsýslu og karlmennskuhugtakinu.

„Hér er á ferðinni sorgarsaga af mannlegum samskiptum sem fóru úrskeiðis en jafnframt tilraun miðaldra karlmanns til að skilja hvað hann gerði rangt. Hverjir kynnu helst að hafa áhuga á að lesa frásögn Péturs? Líklega er það annars vegar helst áhugafólk um vandaða stjórnsýslu og hins vegar um sálræna baráttu og þá einkum og sér í lagi um afleiðingar áfalla,“ segir í tilkynningu.

Í formála bókarinnar segir:

Frásögnin í þessari bók sprettur úr reynslu höfundar sjálfs. Hún byggir á atburðum sem eiga rætur í raunveruleikanum, en hér eru þeir endursagðir og settir í búning fyrir lesendur. Tilgangurinn er að skapa frásögn sem fangar tilfinningalegan sannleik þess sem upplifað var.

Þó byggt sé á raunverulegum skjalfestum atburðum er um að ræða túlkun höfundar — hans sjónarhorn, minningar og upplifun – sem geta verið frábrugðin frásögnum annarra.

Pétur Þór er fyrrverandi framkvæmdastjóri Eyþings, samtaka sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu, þar sem honum var sagt upp störfum vegna ásakana samstarfskonu sinnar. Hann kærði Eyþing í kjölfarið fyrir ólögmæta uppsögn og gerði dómsátt upp á 15 milljónir í bætur.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!