Perlað af Krafti í Menntaskólanum á Akureyri

Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur ætlar að perla armbönd laugardaginn 31. janúar frá 13-16 í Menntaskólanum á Akureyri í tilefni af vitundarvakningu félagsins.

Perlað verður nýtt Lífið er núna armband sem fór í sölu núna í janúar og er hluti af okkar árlegu fjáröflunar- og vitundarvakningu. Góðir gestir hjálpa okkur að halda uppi stuði, en þar má nefna Villa Bergmann Vandræðaskáld og Tinnu Óðins sem gerði garðinn frægan í Söngvakeppninni!
Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.

Frekari upplýsingar um viðburðinn má finna hér og ítarlegri upplýsingar um vitundarvakninguna er að finna hér www.lifidernuna.is

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!