Eins og fram hefur komið undanfarið hafa erlendar þotur, á vegum ferðaskrifstofunnar Super break þurft tvisvar sinnum að lenda í Keflavík í stað Akueyrar í vikunni en koma þarf svokölluðum blindbúnaði (ILS) á flugvöllinn til að erlendar þotur geti lent þegar skyggnið er slæmt. Búnaðurinn mun kosta um 100 milljónir króna að koma upp á flugvöllinn en Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segir að peningar séu ekki vandamálið.
„Það er mjög óheppilegt að þetta skuli koma upp og hefði verið gott ef menn hefðu hugsað þetta áður en lagt var af stað, en verkefnið er hjá Isavia og við verðum að bregðast við eins fljótt og hægt er og erum að skoða það í ráðuneytinu. Við gerum þetta eins hratt og hægt er en það eru áhöld uppi um að það verði ekki hægt fyrr en í vor eða sumar.“ Segir Sigurður.
UMMÆLI