Patrekur Guðni í Þór

Patrekur Guðni í Þór

Handknattleiksmaðurinn Patrekur Guðni Þorbergsson er genginn til liðs við Þór og mun leika með liðinu í Olís-deildinni næsta vetur. Þetta kemur fram á vef Þórsara.

Patrekur, eða Patti, er markvörður fæddur árið 2007 en hann kemur norður frá HK þar sem hann hefur leikið allan sinn feril.

Hann varði mark HK 2 í Grill 66-deildinni á nýafstaðinni leiktíð og varði næstflest (162) skot af markvörðum deildarinnar en Þórsarinn Kristján Páll Steinsson varði flest skot allra (218).

Sambíó
Sambíó