NTC

Páskarnir á Akureyri

Páskarnir á Akureyri

Það verður nóg um að vera á Akureyri yfir páskana. Veðurspáin er með betra móti og búast má við að margir leggi leið sína í höfuðstað Norðurlands.

Menningarlífið blómstrar sem aldrei fyrr um páska og tekin hefur verið saman dagskrá um það helsta sem er á boðstólum á heimasíðunni halloakureyri.is. Þar er jafnframt að finna ýmsar upplýsingar um opnunartíma, gististaði og veitingahús, ásamt ýmis konar afþreyingu í bænum og næsta nágrenni hans.

Fólk getur kynnt sér afgreiðslutíma og stöðuna í Hlíðarfjalli á heimasíðu skíðasvæðisins og skoðað ýmsa aðra möguleika á halloakureyri.is

VG

UMMÆLI

Sambíó