Parki Interiors opnar á Akureyri

Parki Interiors opnaði í dag glæsilega nýja verslun við Sjafnargötu 1b á Akureyri. Með opnuninni stígur Parki mikilvægt skref í að færa fjölbreytt úrval vandaðra innréttingalausna og faglega ráðgjöf nær viðskiptavinum á Norður- og Austurlandi.
Parki býður viðskiptavinum upp á vandaða og faglega ráðgjöf um allt sem lýtur að innréttingum híbýla, fyrirtækja og stofnana, auk framúrskarandi vara og þjónustu á sanngjörnu verði. Í nýjum sýningarsal á Akureyri má meðal annars finna parket, flísar, innihurðir, gólfteppi, dúkaloft, kerfisloft og vandaðar innréttingar, auk ýmissa annarra lausna. Í raun allt sem þarf til að skapa falleg og vönduð rými.
Fyrirtækið rekur stóra verslun við Dalveg í Kópavogi en hefur þó um nokkurt skeið fundið fyrir mikilli eftirspurn eftir breiðara vöruúrvali og þjónustu nær viðskiptavinum á Norðausturlandi. Opnunin á Akureyri er því eðlilegt næsta skref í uppbyggingu þjónustu Parka á landsbyggðinni.
„Við erum afar spennt fyrir því að geta þjónustað viðskiptavini okkar úti á landi enn betur. Við finnum fyrir mikilli þörf og eftirvæntingu á Eyjafjarðarsvæðinu og víðar fyrir norðan og austan. Eitt af okkar gildum er að setja viðskiptavininn í öndvegi og við vonum að með þessu skrefi séum við að mæta þörfum þeirra enn betur. Við bjóðum alla hjartanlega velkomna í glæsilegan sýningarsal okkar við Sjafnargötu á Akureyri,“ segir Gústaf B. Ólafsson, framkvæmdastjóri Parka.
Gunnar Björgvin Arason, verslunarstjóri Parka á Akureyri, segir opnunina vera mikilvægt skref fyrir fyrirtækið og viðskiptavini á svæðinu.
„Það er virkilega ánægjulegt að fá að opna Parka á Akureyri og geta boðið fólki á svæðinu upp á fjölbreytt úrval, faglega ráðgjöf og persónulega þjónustu á einum stað. Við hlökkum mikið til að taka á móti bæði nýjum og núverandi viðskiptavinum og hjálpa þeim að finna heildarlausnir fyrir heimili sín, fyrirtæki og önnur rými,“ segir Gunnar.
Parki er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Íslandi og hefur á undanförnum árum byggt upp öflugt vöruúrval og sérþekkingu á sviði innréttinga og hönnunar. Með nýrri verslun á Akureyri styrkir fyrirtækið enn frekar þjónustu sína við viðskiptavini um allt land.
Parki Interiors er við Sjafnargötu 1b á Akureyri og býður alla velkomna í nýjan og glæsilegan sýningarsal.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










