Pollamót Samskipa verður haldið í 37. sinn á íþróttasvæði Þórs um helgina. 68 lið eru skráð til leiks á mótinu þetta árið sem er metþáttaka og spilað verður á föstudag og laugardag.
Skemmtidagskráin er ekki af verri endanum frekar en fyrri ár. Á föstudagskvöld verður Ingó Veðurguð sem heldur uppi stuðinu frá kl. 21:00 á pallinum við Hamar, miða á föstudagskvöldið má nálgast hér. Páll Óskar ásamt BlazRoca loka svo mótinu með balli í Boganum á laugardagskvöld frá kl. 23:00 til 03:00. Miða á ballið á laugardaginn má nálgast hér.
![](https://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2024/07/445725893_3470514089761032_7465592657980240772_n-650x649.jpeg)
![](https://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2024/07/445647919_415792304762766_5670585710158537192_n-1-650x653.jpg)
Þessi færsla er kostuð. Smelltu hér til þess að kynna þér auglýsingatilboð á Kaffið.is.
UMMÆLI