MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Óskastund Kristínar Sigfúsdóttur skálds í Sigurhæðum

Eftir María Hjelm·
KristínSigfúsdóttirLjósmyndCa1915MinjasafniðSTÆ2-259
kaffid.is

Fimmtudaginn 18. júní verður boðið til 150 ára fæðingarafmælis Kristínar Sigfúsdóttur skálds frá Helgastöðum í Eyjafirði. Viðburðurinn fer fram í dagstofum Sigurhæða á Akureyri frá klukkan 17-18.

Leikararnir Hjalti Jónsson, Jón Benónýsson, Kolbrún Lilja Guðnadóttir, Sunna Borg og Þuríður Jóna Schiöth leiklesa brot úr leikritinu Tengdamömmu sem Kristín skrifaði árið 1920 og var leikið víða um land við miklar vinsældir.

Sigrún Jóhannesdóttir barnabarn Kristínar segir einnig stutt frá eftirminnilegri ömmu sinni.

Umsjón með dagskránni hafa María Pálsdóttir leikari og Kristín Þóra staðarhaldari í Sigurhæðum. Verkefnið er unnið í samstarfi við Menningarsjóð Eyjafjarðarsveitar, Akureyrarbæ, Uppbyggingarsjóð Norðurlands Eystra sem og Ráðuneyti menningar, háskóla og nýsköpunar.

Óskastund Kristínar er öllum opin og enginn aðgangseyrir.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026