NTC

Óskar Jónasson meistari Píludeildar Þórs í 301 einmenning 2022

Óskar Jónasson meistari Píludeildar Þórs í 301 einmenning 2022

Meistaramót Píludeildar Þórs í 301 einmenning fór fram síðastliðin laugardag. 26 keppendur mættu til leiks og er gaman að segja frá því að þetta er fjölmennasta 301 meistaramót sem haldið hefur verið á Íslandi á þessu ári. Gleðiefni og það má með sanni segja að pílukast sé á hraðri uppleið á Akureyri. 

Það sem er öðruvísi við 301 einmenning er að til að geta byrjað að skjóta sig niður þarf að hitta í tvöfaldan reit. Klára þarf svo leikinn líkt og í 501, á tvöföldum. Meistaramótið var spilað í 4 riðlum og efstu 4 í hverjum riðli fyrir sig fóru áfram í 16 liða útslátt. 

Í undanúrslitum mættust annars vegar Sigurður Þórisson og Valþór Atli og hins vegar Óskar Jónasson og Hallur Guðmundsson. Það fór svo að Sigurður Þórisson og Óskar Jónasson mættust í úrslitum og var það Óskar sem sigraði 5-4 eftir frábæran úrslitaleik. 

Sýnt var frá tveimur spjöldum allt mótið og voru allir leikir frá og með 8 manna úrslitum sýndir beint. Hægt er að horfa á útsendinguna á eftirfarandi slóðum:

Aðstaða Píludeildar Þórs í Laugargötu er opin á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 19:00-22:00. Þar eru allir velkomnir að koma og prófa að kasta. Aðili úr stjórn er ávallt á staðnum á þessum tíma til að aðstoða og hjálpa ef áhugi er fyrir því.

FitnessSport Íslandsmótið í 301 pílu fer fram næstkomandi sunnudag, 30.október á Bullseye í Reykjavík. Píludeild Þórs verður með hópferð á mótið og fara tveir 9 manna bílar frá Akureyri á laugardaginn og svo heim að móti loknu. Píludeild Þórs sér um ferðakostnað en til þess að geta komið með þarf að vera meðlimur í Píludeild Þórs og skrá sig á mótið á sunnudaginn. Þau sem hafa áhuga á því að fara með í ferðinna eru hvött til þess að skrá sig. Hægt er að sjá frekari upplýsingar á Facebook undir „Píludeild Þórs“.

Sambíó

UMMÆLI