Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir tilboði í útboðsverkið: Sjúkrahúsið á Akureyri – jarðvinna – götur, veitur og bílastæði – Útboð 2083
Verkið er fyrsti áfangi verkframkvæmda við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) vegna stækkunar á sjúkrahúsinu til suðurs þar sem nú eru bílastæði. Við þessa stækkun þarf að gera ný bílastæði og endurnýja veitukerfi á lóð sjúkrahússins á milli Þórunnarstrætis og Búðartraðar.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Gert er ráð fyrir að 13.300 m2 nýbygging verði staðsett sunnan við núverandi byggingar á lóð SAk og tengd núverandi húsnæði.
Stærstu verkliðir eru
– Gröftur á jarðefnum 50.000 m3
– Malbikun 7.400 m2
Tilboðum skal skila í gegnum útboðskerfið tendsign.is fyrir kl. 13:00, 29. apríl
Sjá nánar á utbodsvefur.is










