MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Orri aftur til Þórs

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
orri
kaffid.is

Knattspyrnudeild Þórs hefur gert eins árs samning við Orra Sigurjónsson og snýr hann aftur til Þórs eftir að hafa leikið með Fram síðustu tvö tímabil. Orri spilaði 23 leiki fyrir Fram og skoraði þrjú mörk.

Orri hafði leikið allan sinn feril með Þór og var valinn besti leikmaður liðsins sumarið 2022 á lokahófi félagsins það ár. Alls hefur hann leikið 253 leiki í meistaraflokki hér á landi, þar af 38 í efstu deild. Orri er í tólfta sæti yfir leikjahæstu leikmenn Þórs frá upphafi.

„Við bjóðum Orra hjartanlega velkominn heim í Þorpið!“ segir á vefsíðu Þór þar sem tilkynningin kom fram.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026