Örn Þór Emilsson frönsku- og spænskukennari lætur af störfum
Eftir María Hjelm·

Örn Þór Emilsson frönsku- og spænskukennari lætur af störfum eftir 35 ára starf við Menntaskólann á Akureyri. Þetta kemur fram á vef MA.
Karl Frímannsson skólameistari hélt ræðu á brautskráningarathöfn MA í Íþróttahöllinni á Akureyri í morgun og þar var Örn Þór sérstaklega kvaddur:
Örn er fjölfróður maður og fylgist vel með allri þjóðmálaumræðu innanlands sem utan og hefur kennslan hans einkennst af víðsýni ekki síður en kröfunni um árangur.
Auk þess fékk Örn Þór gullugluna sem er heiðursmerki skólans.
Örn Þór hefur náð til fjölmargra nemenda sem sótt hafa skólann í gegnum tíðina og verið vel liðinn meðal þeirra. Með starfslokum hans lýkur löngum kafla í sögu skólans.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










