Opnuð hafa verið tilboð vegna þátttöku í hönnun á nýrri legudeild sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Verkefnið felur í sér hönnun á 9.200 m2 nýbyggingu ásamt lóðarhönnun og aðkomu að deiliskipulagsbreytingu. Fjallað er um málið á vefnum byggingar.is.
Gert er ráð fyrir að nýbygging verði staðsett sunnan við núverandi byggingar á lóð SAk og tengd núverandi húsnæði.
Á þriðja tug aðila, sem mynda sex hópa, sendu inn þátttökutilkynningu. Í framhaldinu verða fimm hópar valdir til þátttöku í útboðinu þegar forvalsnefnd hefur metið innsend gögn.
Ef niðurstaða lendir á jöfnu mun fulltrúi sýslumanns draga út þann hóp sem ekki fær boð um að taka þátt í útboðinu.
- Arkþing Nordic
- Exa nordic
- Lota ehf.
- Myrra hljóðstofa
- Líf byggingar
- EFLA
- ASK arkitektar
- Ratio arkitekter
- Mannvit
- Arkís arkitektar
- Verkís
- TBL arkitektar
- JCA Ltd
- Brekke & Strand
- VSÓ ráðgjöf
- Hornsteinar arkitektar
- Brunahönnun
- Brekke & Strand
- Niras
- Teiknistofan Tröð
- Teknik verkfræðistofa
- TKM hönnun
- Örugg verkfræðistofa
- Hljóðvist
Heimild: NLSH.is
UMMÆLI