NTC

Opnun Svanhildarstofu á HÆLINU 

Opnun Svanhildarstofu á HÆLINU 

Sunnudaginn 20. nóvember verður Svanhildarstofa á HÆLINU setri um sögu berklanna opnuð formlega.

Svanhildur Ólafsdóttir Hjartar var móðir Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrverandi forseta og hún glímdi við berkla megnið af sinni ævi. Hennar verður minnst í Svanhildarstofu þar sem komið hefur verið upplýsingum og sýningargripum, sem tengjast sögu hennar, á lifandi og áhrifaríkan hátt.

Hr. Ólafur Ragnar flytur ávarp og les upp úr nýútkominni bók sinni; Bréfin hennar mömmu.  Hann mun lesa klukkan 14 og aftur klukkan 15.

Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Frítt er inn á sýninguna um Hvíta dauða.

Bréfin í bláu töskunni

Í hálfa öld lágu bréf í blárri tösku sem enginn vissi af. Það var óvænt ánægja og sterk upplifun fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, að uppgötva þau nýverið. Þegar hann yfirgaf Bessastaði 2016 fór hann með töskuna ásamt 200 öðrum kössum beint á Þjóðskjalasafnið til varðveislu. Við undirbúning Svanhildarstofu hér á HÆLINU var Ólafur spurður hvort ekki væru til bréf frá móður hans er hún dvaldist langdvölum á berklahælum, bæði á Vífilsstöðum og Kristnesi. Hann taldi það ekki vera, hafði aldrei heyrt af því en datt þó í hug að mögulega gæti eitthvað leynst í bláu töskunni. Það reyndist rétt vera. Tugir bréfa sem lýsa ást, söknuði, vonbrigðum, æðruleysi og eilífri von og gefa magnaða innsýn í líf berklasjúklinga en einnig tíðarandann um miðja síðustu öld.

Sambíó

UMMÆLI