Fyrr í vikunni var greint frá opnun fríhafnarinnar á Akureyrarflugvelli og núna í gær var hún formlega tekin í notkun. Samkvæmt Facebook-síðu AEY (Akureyri International Airport) gekk opnunin vel en eins og segir áður frá verður verslun fríhafnarinnar ávallt opin á meðan á komum eða brottförum millilandafluga stendur. Ferðalangarnir sem fóru fyrstu ferð í gegnum verslunina í gær voru að koma heima frá Alicante.
UMMÆLI