Opnar leikprufur fyrir börn og ungmenni

Stórsýningin Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson verður frumsýnd í Samkomuhúsinu með pompi og prakt í febrúar 2027.
Leitað er að krökkum á aldrinum 9-18 ára til að fara með hlutverk Putta litla, auk fjölda annarra skemmtilegra ævintýrapersóna sem munu lífga upp á ævintýraskóginn á sviðinu. Þetta er einstakt tækifæri fyrir ungt fólk með áhuga á leiklist og söng til að stíga á stóra sviðið og taka þátt í metnaðarfullri uppsetningu.
Áheyrnarprufur fara fram í Samkomuhúsinu á Akureyri þann 5. september 2026.
Opið er fyrir skráningar í prufurnar og rennur skráningarfrestur út þann 3. september.
Öll börn sem skrá sig í prufur fá að spreyta sig í söng, leik og dansi. Áður en mætt er í prufunar þurfa þátttakendur að æfa senu, lag og stutta dansrútínu heima.
Við hvetjum öll börn og ungmenni á aldrinum 9-18 ára, af öllum kynjum og uppruna til að sækja um, óháð reynslu.
Hér er hlekkur á lag, texta og dansahreyfingar
Þeim sem ekki þekkja söguna er bent á að hægt er að nálgast bókina á bókasöfnum og á Storytel. Eins er platan aðgengileg á Spotify.
Prufur fara fram í Samkomuhúsinu laugardaginn 5. september og mögulegt er að einhver börn verði boðuð áfram í áframhaldandi prufur þann 6. september.
Umsækjendur fá sendar nánari upplýsingar um fyrirkomulag þegar nær dregur áheyrnarprufum.
Æfingar á Skilaboðaskjóðunni hefjast 18. nóvember og sýnt verður allar helgar frá 13. febrúar til að minnstakosti 18. apríl.
Fyrirspurnir sendast á thorunn@mak.is
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










