MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Opnað fyrir umsóknir um afslátt af leikskóla- og frístundagjöldum

Eftir Ingólfur Stefánsson·
leikskoli-851×315-1
kaffid.is

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um afslátt af leikskóla- og frístundagjöldum fyrir skólaárið 2026-2027. Sótt er um afslátt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar: https://thjonustugatt2.akureyri.is/

Núverandi afsláttur gildir til 31. ágúst nk. og því þurfa foreldrar að sækja aftur um fyrir næsta skólaár. Umsókn þarf að berast fyrir 10. hvers mánaðar svo afslátturinn taki gildi fyrir komandi mánuð. Afsláttur er ekki veittur afturvirkt.

Með umsókn þarf að fylgja afrit af skattframtali 2026 vegna tekna á árinu 2025 og staðgreiðsluskrá fyrir árið 2026.

Hér má nálgast reglur um afslátt af leikskóla- og frístundagjöldum.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026