Opna fjölskyldustað allan ársins hring á Hannes Boy

Nýir rekstraraðilar tóku við veitingadeild Rauðku á Siglufirði nú um mánaðamótin, hjónin Bjarni Rúnar Bequette og Halldóra Guðjónsdóttir framreiðslumaður. Bjarni hefur meðal annars starfað á Einari Ben, Hótel Nordica, Holmenkollen í Noregi og Hótel Héraði. Hann starfaði einnig í 9 ár á Fosshótel í ýmsum stöðum og nú síðast sem yfirkokkur á Fosshótel Reykjavík. Halldóra starfaði í 9 ár hjá Fosshótelum og er útskrifuð sem framreiðslumaður frá Grand hótel Reykjavík.
„Við munum reka veitingastaðinn Sunnu á Sigló Hótel, Hannes Boy, Rauðku og prepp eldhúsið. Þá munum við einnig reka skíðaskálann og gólfskálann. En þeir eru ekki komnir upp eins og er. Golfskálinn kemur vonandi í sumar.” segir Bjarni í samtali við Veitingageirinn.is

Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










