MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Opnað aftur fyrir umsóknir í fjölmiðlafræði og nútímafræði

Eftir Ingólfur Stefánsson·
unak-frett-agust-innritun-05.08.2026
kaffid.is

Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri hefur ákveðið að opna fyrir umsóknir nýnema í fjölmiðlafræði og nútímafræði á seinna umsóknartímabili. Tekið er við umsóknum frá 5. ágúst til og með 13. ágúst. Eindagi skrásetningargjalda er 20. ágúst.

Á seinna umsóknartímabili eru einungis umsóknir sem uppfylla almenn innritunarskilyrði teknar til afgreiðslu. Ekki verður tekið við undanþáguumsóknum. Einnig verður ekki heimilt að skipta yfir í aðra námsleið. Almennur umsóknarfrestur rann út 5. júní og verður ekki tekið við umsóknum í aðrar námsleiðir

Fjölmiðlafræði

Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á BA-próf í fjölmiðlafræði. Námið veitir sérstakan grunn í félags- og hugvísindum með sérstakri áherslu á fjölmiðlun, eðli hennar og áhrif. Samhliða fræðilegri dýpt fá stúdentar verklega þjálfun í að skapa fjölmiðlaefni. Áhugasöm geta kynnt sér fjölmiðlafræði betur hér.

Nútímafræði

Nútímafræði er fjölbreytt BA-nám sem sameinar hug- og félagsvísindi og gefur stúdentum tækifæri til að skoða samfélagið frá ólíkum sjónarhornum. Í náminu er lögð áhersla á gagnrýna hugsun, menningu, samfélagsbreytingar og samtímann, auk þess sem stúdentar geta mótað námið að eigin áherslum. Áhugasöm geta kynnt sér nútímafræði betur hér.

  • Sótt er um námið í umsóknargátt HA

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026