Opinn íbúafundur Arfs Akureyrarbæjar

Félagasamtökin Arfur Akureyrarbæjar boða til opins íbúafundar þriðjudaginn 21. apríl nk., kl. 17:00 í Hömrum, Menningarhúsinu Hofi, um skipulagsmál, menningarminjar og ásýnd Akureyrarbæjar. Á dagskrá er stutt erindi frá samtökunum um tilgang fundarins og kynning frá skipulagsdeild Akureyrarbæjar á forsendum og skilmálum hugmyndasamkeppni sem nú stendur yfir um framtíð Akureyrarvallar. Því næst verða pallborðsumræður með þátttöku fulltrúa þeirra stjórnmálaframboða sem bjóða fram í komandi bæjarstjórnarkosningum og fulltrúa skipulagsdeildar þar sem íbúum gefst tækifæri til að beina spurningum til fulltrúanna. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur er fundarstjóri og stýrir pallborðsumræðum.
Félagasamtökin Arfur Akureyrarbæjar voru stofnuð á 160 ára afmæli Akureyrar, þann 29. ágúst 2022, af hópi áhugafólks sem hafði áhyggjur af því að menningararfur, staðareinkenni og saga bæjarins fengju sífellt minna vægi í skipulagsákvörðunum. Frá stofnun hafa helstu markmið samtakanna verið að vekja og viðhalda áhuga á gildi menningarminja og benda á þau tækifæri sem felast í húsvernd og uppbyggingu þar sem sýnd er virðing fyrir sögulegu samhengi byggðarinnar í ákvörðunum um skipulagsmál.
Bæjarbúar eru hvattir til að mæta á fundinn og taka virkan þátt í umræðum um mikilvæg mál sem varða alla.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










