MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Opinn fundur um vestnorrænt samstarf á Amtsbókasafninu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
amtsbokasafnid-ad-utan-auglysing01-1038×681
kaffid.is

Norræna félagið á Norðurlandi býður almenningi á opinn kynningarfund um starfsemi Vestnorræna ráðsins miðvikudaginn 2. september kl. 17:00 á Amtsbókasafninu á Akureyri.

Jón Gnarr, formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, mun segja frá starfi ráðsins og þeim málum sem nú eru efst á baugi í samstarfi Íslands, Færeyja og Grænlands. Að loknu erindi verða umræður og tækifæri fyrir gesti til að leggja fram spurningar.

Auk Jóns Gnarr verða allir þingmenn Íslandsdeildarinnar á staðnum; þau Ingibjörg Davíðsdóttir, Jens Garðar Helgason, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Sigurjón Þórðarson og Jón Gunnarsson. Ritari Íslandsdeildar, Hildur Edwald og framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, Lárus Valgarðsson munu einnig mæta.

Vestnorræna ráðið er samstarfsvettvangur þjóðþinga og ríkisstjórna Íslands, Færeyja og Grænlands um sameiginleg málefni vestnorrænu landanna.

Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Hér má sjá facebook-viðburð: https://fb.me/e/9k9ByTqix

Staður: Amtsbókasafnið á Akureyri
Tími: Miðvikudagur 2. september kl. 17:00–17:45
Skipuleggjandi: Norræna félagið á Norðurlandi í samstarfi við Vestnorræna ráðið.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026