Umhverfisstofnun hefur verið falið að endurskoða stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir – Saman gegn sóun. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að fá innsýn í sjónarmið fólks, fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana um land allt.
Þriðjudaginn 9. apríl frá kl. 9 til 11.30 verður Umhverfisstofnun með opinn fund í Hofi Akureyri þar sem þátttakendur fá fræðslu um þau tækifæri sem liggja í bættri nýtingu og minni sóun og færi á að koma með tillögur að aðgerðum.
Þátttaka er án endurgjalds og boðið verður upp á léttar veitingar, einnig verður streymt frá fundinum.
Hér er viðburðurinn á Facebook
Skráning er nauðsynleg – sjá hér
HVAÐ ERU ÚRGANGSFORVARNIR?
- Hvernig komum við í veg fyrir að verðmæti verði að rusli?
- Hvernig nýtum við hluti, efni og auðlindir betur og lengur?
- Hvernig getur fjármagn og regluverk hjálpað fyrirtækjum í átt að minni sóun?
- Hvaða ávinning hefur þetta allt saman í för með sér fyrir fyrirtæki og fólk?
Þetta er kjarninn í stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir – Saman gegn sóun.
FYRIR HVER?
- Öll!
- Starfsfólk fyrirtækja
- Starfsfólk sveitarfélaga og stofnana
- Nemendur
- Almenning
AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ MÆTA?
- Tækifæri til að hafa bein áhrif á stefnu stjórnvalda og koma sjónarmiðum þínum eða þíns vinnustaðar á framfæri
- Fræðsla um hringrásarhagkerfið
- Innblástur frá fyrirtækjum á svæðinu
- Tækifæri til að spyrja sérfræðinga spurninga
- Tækifæri til að ræða við fólk og fyrirtæki af svæðinu um þessi mál
DAGSKRÁ
- Starfsfólk Saman gegn sóun hjá Umhverfisstofnun segir frá verkefninu: Hver er staðan á Íslandi? Hvaða tækifæri eru til að gera enn betur?
- Tækifærin í deilihagkerfinu – Hrönn Björgvinsdóttir frá Amtsbókasafninu á Akureyri
- Að halda samkeppnisforskoti á alþjóðamörkuðum í 40 ár á forsendum umhverfisins – Arnar Snorrason frá Sæplast
- Samtal um aðgerðir
Nánari dagskrá verður auglýst á næstu dögum.
UMMÆLI